Hornsteinninn fyrir nýliða og endurkomufólk

Hornsteinninn; námskeið til að hefja batagöngu við matarfíkn

Næsta Hornsteinsnámskeið hefst laugardaginn 04.10.25. og lýkur miðvikudaginn 29. 10.25. með möguleika á áframhaldandi stuðningi og úrvinnslu þegar námskeiði lýkur.

Þessi námskeið eru eingöngu fyrir þá sem fá skimun og greiningu á sykur/matarfíkn. 

Við byrjum á að skilgreina og skilja vandann, skoðum lausnamiðað prógramm sem byggir á fráhaldi frá matvælum sem valda líffræðlegri ílöngun og verkfærum sem skila okkur lífstílsbreytingum til lengri tíma.

Skimunar og greiningarviðtal tekur 55 mínútur og kostar kr. 16.000 (14.000 fyrir öryrkja og skólafólk).

Námskeiðin eru haldin alfarið í gegnum zoom fjarfundabúnað og hefjast Laugardaginn 04.10. 2025 kl. 9-14.

Innifalið í námskeiðinu:
8 fundir á Zoom fjarfundabúnaði
Fyrirlestrar til hlustunar
Hóptímar
Daglegur stuðningur með ráðgjafa
Matreiðslunámskeið
Meðferðarefni með leiðbeiningum um fráhald, uppskriftum ásamt lestrarefni og verkefnum

Hóptímar og námskeiðið eru haldin með Zoom fjarfundabúnaði.

Námskeiðin byggja á tveimur megin þemum:
1. Hver er vandinn?  
2. Hver er lausnin?  

Verð fyrir 30 daga námskeið:  Kr. 99.000.- með 10% staðgreiðslu-afslætti kr. 89.000.-

Boðið er uppá ýmsa greiðslumöguleika og veittur er 10% afsláttur fyrir þá sem staðgreiða og einnig fyrir skólafólk, öryrkja og heldri borgara.
Við bjóðum einnig að greiða með allt að 6 jöfnum greiðslum úr heimabanka.

Við bjóðum uppá stuðningshópa fyrir endurkomufólk og nýtt námskeið Lykilsteininn fyrir þá sem vilja öðlast varanlegan bata.

Tímaáætlun
TÍMASETNINGAR FYRIR HORNSTEININN: Október 2025:
Laugardaginn 04.10. kl. 09-14
Mánudaginn 06.10. kl. 17-18.30
Miðvikudaginn 08.10. kl. 17-18.30
Mánudaginn 13.10. kl. 17-18.30
Miðvikudaginn 15.10. kl. 17-18.30
Mánudaginn 20.10. kl. 17-18.30
Miðvikudaginn 22.10. kl. 17-18.30
Mánudaginn 27.10. kl. 17-18.30
Miðvikudaginn 29.10. kl. 17-18.30

Translate »
Scroll to Top