“Lykilsteinninn” er umbreytandi 15 vikna prógramm sem blandar saman visku AA bókar Alcoholics Anonymous og meðferða MFM miðstöðvarinnar sem eru í framlínu á heimsvísu. Prógrammið er einstakt og gefur þátttakendum tækifæri á að dýpka bataferlið sitt.
- Námskeiðið byggir á alhliða nálgun sem sameinar visku hefðbundinna meðferða með nútíma áherslum. Þessi samsetning fjallar um margþætt eðli fíknar og bataferla og gerir endurkomufólki kleift að öðlast dýpri skilning á kenningum AA bókarinnar.
- Þátttakendum er leiðbeint með grípandi fyrirlestrum, verkefnum, lestri, hlustun og hópumræðum, til dýpri sjálfsvitunar, tilfinningalegs jafnvægis, skýrrar lífsstefnu, frelsis og umbreytingar á lífstíl.
- Þetta námskeið er sniðið að þeim sem sækjast eftir dýpra innsæi á gildum og leiðsögn sem er kynnt í AA bókinni, sem er hornsteinn 12 spora bataferlis.
Það sem þú færð útúr þessu námskeiði:
- Dýpri skilning á meginreglum og gildum AA bókarinnar og mikilvægi þeirra.
- Aukna hæfni til að styðja aðra á þeirra batabraut.
- Endurnýjaða tilfinningu um tilgang og skuldbindingu um áframhaldandi bata.
- Aukna sjálfsvitund, seiglu og persónulegan vöxt.
- Hagnýtar æfingar til að beita kenningunum í raunverulegum aðstæðum.
- Gagnvirkar hópumræður þar sem innsýn og reynslu er deilt.
- Svör við spurningum og stuðningur frá starfsfólki MFM.
- Tækifæri til að leggja þitt af mörkum til að skapa og dýpka öflugt samfélag þeirra sem vinna að persónulegum bata.
Í lok námskeiðsins munu þátttakendur hafa öðlast djúpstæðan skilning á visku AA bókarinnar, mikilvægi hennar í samtíma meðferðum og hvernig kenningar hennar geta leitt til varanlegrar umbreytingar. Hvort sem þú leitar að persónulegum vexti, dýpri tengingu við eigin bata eða vilt styrkja aðra í gegnum 12 sporin er „Undirstaðan” leiðarvísir þinn til skilnings á raunverulegum möguleikum AA bókarinnar.
Námskeiðið hefst mánudaginn 10. febrúar til 19. maí 2025, kl. 17-19.
Verð kr. 99.000.- Við bjóðum uppá 10% staðgreiðsluafslátt og allt að 6 mánaða greiðslukjör; kr. 16.500 per mánuð.